© 2024 Tix Miðasala
Breiðholtskirkja
•
19. október
Miðaverð frá
2.500 kr.
Frönsk lög frá miðöldum til barokks
Mathias Spoerry – Söngvari
Sergio Coto – Lúta og rómantískur gítar
Efniskrá:
Pierre Attaignant (1494-1552) Amy souffrez
Adrien Le Roy (1520-1598) Branle gay “la ceinture que ie porte.”
Guillaume de Machaut (1330-1377) Hont paur (skraut úr Faenza-handritinu)
Pierre Attaignant Il me suffit
Le jeune et le blanc Courante Victor de Montbuisson (1575-1638):
Nicolas Vallet (1583-1642) Psaume 110
Victor de Montbuisson Courante
Nicolas Vallet Psaume 24
Etienne Moulinié (1599-1676) Quel nouveau Dieu
Michael Lambert (1610-1696) Goutons un deux repos
Francois Doisy (1748-1806) Les Regrets de L´Amour
Sergio Coto Blanco fæddist árið 1985 í San José í Kosta Ríka. Hann nam lútu- og teorbuleik við listaháskólann Hochschule für Künste Bremen, þaðan sem hann útskrifaðist með meistarapróf árið 2017, og hefur sérhæft sig í flutningi endurreisnar- og barokktónlistar. Sergio hefur starfað sem lútuleikari víða í Evrópu og spilað undir hjá hópum eins og Vokalakademie Berlin, Das Norddeutsche Barockorchester, Bach-Chor München, Kammerphilharmonie Bremen og á hátíðum eins og Händel-Festspiele Halle, Internationales Bachfest Schaffhausen, Heidelberger Frühling og Bachwoche Stuttgart. Sergio hefur komið reglulega fram á Íslandi frá því 2010, m.a. á Sumartónleikum í Sigurjónssafni og Sumartónleikum í Skálholti og spilar með mismunandi hópum hér á landi, eins og Kammerhópnum ConsorTico, Spiccato, Capella Reykjavicensis og Kammersveit Breidholts. Sergio var einn af flytjendunum á fyrstu alþjóðlegu barokkhátíðinni sem haldin var í Hörpu í mars 2024, Reykjavík Early Music Festival. Veturinn 2024-2025 tekur hann þátt í uppfærslu LHÍ og erlendra tónlistarháskóla á elstu varðveittu óperunni eftir konu, La liberazione di Ruggiero dall´isola d´Alcina eftir Francescu Caccini sem teorbuleikari og leiðbeinandi. Haustið 2023 gaf hann út fyrstu hljómplötu sína, Consort of Two, ásamt barokkhörpuleikaranum Sólveigu Thoroddsen, en platan kom út hjá þýska plötufyrirtækinu arcantus. Hann hefur kennt kontrapunkt við Universidad Nacional de Costa Rica (UNA) og kennir nú á gítar og tónfræði við Do re mí og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Mathias Spoerry byrjaði námsferil sinn í tónlist sem óbóleikari en svo tók söng- og slagverksnám við. Fljótlega uppgötvaði hann ástríðu fyrir snemmtónlist og hóf hann þá nám í barokksöng og tónlistarfræðum sem leiddi hann svo í mastersnám í flutningi miðaldatónlistar undir handleiðslu Benjamin Bagby og Katarina Livljanic við Sorbonne háskólann í París, þar sem hann einnig tók þátt í fyrstu upptöku á 14.aldar verkinu Sorbonne-messunni.
Árið 2011 lauk Mathias mastersnámi í söng og miðaldatónlist við miðaldadeild Schola Cantorum Basiliensis (Basel, Sviss), undir handleiðslu Dominique Vellard og lauk einnig ári síðar við sama skóla námsleiðinni Advanced Vocal Ensemble Studies sem Anthony Rooley og Evelyn Tubb leiddu.
Árin 2014 – 2023 kenndi Mathias söng við Tónlistarskólann á Tröllaskaga og stjórnar frá árinu 2016, Sölku, kvennakór Dalvíkur.
Mathias Spoerry hefur komið víða fram og gert hljóðritanir með sönghópum svo sem Sequentia, Gilles Binchois, Diabolus in Musica, La Morra, Oiet, Leones, Mora Vocis, Ordo Virtutum, Le Miroir de Musique, Venance Fortunat, Chant 1450 og White Raven.