© 2024 Tix Miðasala
Háskólabíó
•
3. október
Miðaverð frá
4.990 kr.
Fimmtudaginn 3. október verða haldnir styrktartónleikar í minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur sem lést þann 30. ágúst síðastliðinn.
Tónleikarnir verða haldnir í stóra salnum í Háskólabíó og fremstu tónlistarmenn landsins munu koma fram:
Friðrik Dór
GDRN
Aron Can
Bubbi Morthens
Páll Óskar
Allur ágóði mun renna beint í minningarsjóð Bryndísar Klöru en verndari sjóðsins er Halla Tómasdóttir. Sjóðurinn mun styðja við verkefni sem miða af því að vernda börn gegn ofbeldi.
Húsið opnar kl. 18:30 og hefjast tónleikarnir stundvíslega kl. 19:30.
Gestir eru hvattir til að mæta í bleiku sem var uppáhaldslitur Bryndísar Klöru.
Til að styrkja málefnið enn frekar hvetjum við fólk til að kaupa veitingar á staðnum. Hægt verður að kaupa pizzur frá Shake and Pizza og Flatey, nammi frá Freyju, bakarísmat frá Sætum Syndum og Gæðabakstri ásamt drykkjum frá Ölgerðinni.
Miðaverð:
0 -18 ára: 4.990kr
Fullorðnir: 5.990kr
Tónleikarnir eru u.þ.b. tvær klukkustundir með tuttugu mínútna hléi.