© 2024 Tix Miðasala
Harpa
•
27. október
Norrænir ævintýrakórar með YNOC og ungum einsöngvurum
Norræn óperutónlist hljómar sjaldan á tónleikum og því er hér um að ræða einstakt tækifæri til að heyra kórperlur úr norrænum óperum á borð við Maskerade (Nielsen), Snöfrid (Stenhammar), Singoalla (de Frumerie), Ragnheiði (Gunnar Þórðarson) og Þrymskviðu (Jón Ásgeirsson). Þá verður einnig flutt áhugavert kórverk eftir Kaiju Saariaho. Hinn sænski Andreas Hansson stjórnar kórnum og Olivera Marinkovic leikur á píanó.
Young Nordic Opera Choir er skipaður ungum atvinnusöngvurum og langt komnum söngnemendum á aldrinum 18-35 ára frá öllum Norðurlöndunum. Kórinn þreytti frumraun sína á Óperuhátíðinni í Herning í Danmörku haustið 2023 en norræna samstarfsverkefnið varð að veruleika með tæplega 80 milljóna króna styrk frá A.P. Møller sjóðinum.
Í haust hefur kórinn komið fram á Nordic Song Festival í Trollhättan í Svíþjóð, Óperuhátíðinni í Herning og menningarhátíð í Mors í Danmörku.
Vinsamlegast athugið: Því miður forfallast Jóhann Kristinsson sem átti að syngja á tónleikunum en ungir einsöngvarar úr kórnum fylla í skarðið.