Benjamín Gísli við flygilinn

Hannesarholt

15. október

Þriðjudagskvöldið 15. október mun píanóleikarinn Benjamín Gísli Einarsson leika einleik á flygilinn í Hannesarholti. Á efnisskránni verða frumsamin verk eftir Benjamín ásamt klassískum íslenskum perlum.

Benjamín, sem er búsettur í Noregi, nýtur mikillar velgengni í tónlistarsenunni þar og kemur reglulega fram á stærstu jazzhátíðum og jazzklúbbum landsins. Í fyrra gaf hann út plötuna Line Of Thought með tríói sínu, sem hefur fengið frábæra dóma víða um heim.

“Benjamín Gísli understands the use of silence as a sound” - George W. Harris, Jazz Weekly (US)

"Line Of Thought is a good debut and there’s purity and melancholic beauty in the stillness of the music.” - Kevin Ward, Ukvibe (UK)

https://orcd.co/bbsuite
https://orcd.co/line_of_thought
www.benjamingisli.com

Tónleikarnir hefjast kl 20, húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg. Miðar fást á tix.is og miðaverð er 4.900 kr.

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger