Valdimar Guðmundsson - jólatónleikar

Harpa

21. desember

Miðaverð frá

5.990 kr.

Stórsöngvarinn Valdimar Guðmundsson snýr aftur og heldur sína árlegu jólatónleika í Eldborg laugardaginn 21. desember ásamt fjölmennri hljómsveit, blástri og bakröddum.

Sérstakir hátíðargestir í ár eru Bríet, gugusar & Júníus Meyvant

Valdimar þarf vart að kynna en hann hefur verið einn þekktasti og dáðasti söngvari landsins undanfarinn áratug og rúmlega það. Hljómsveit hans, Valdimar, hefur víða gert garðinn frægan og þar að auki státar hann af glæsilegum sólóferli.

Hljómsveitarstjóri er hinn geðþekki Ómar Guðjónsson. Búast má við hugljúfum en einnig kraftmiklum jólatónleikum, sem enginn ætti að missa af.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger