© 2024 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
24. nóvember
Íslenski dansflokkurinn kynnir tvö ný íslensk dansverk, frumsýnd sama kvöldið á stóra sviði Borgarleikhússins.
Hverfa
Verk eftir Melkorku Sigríði Magnúsdóttur
Hverfa er óður til negatívunnar og þess sem blasir ekki við, líkt og ranghverfa á flík, herðatré á tómum fatarekka, hátalarasnúra í flækju eða annað sem við tökum að öllu jöfnu ekki eftir. Verkinu má líkja við upphafningu á aukaatriðum þar sem hið ósýnilega verður sýnilegt. Í Hverfu mætast tveir dansarar í nokkurs konar sálumessu til leikhússins og þess sem á það til að hverfa í bakgrunninn.
Höfundur: Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
Dansarar: Ásgeir Helgi Magnússon, Andrean Sigurgeirsson
Leikmynd og Búningar: Elín Hansdóttir
Tónlist: og hljóðmynd: Árni Rúnar Hlöðversson
Ljósahönnun: Jóhann Friðrik Ágústsson
Dramatúrg: Igor Dobricic
Framleiðsla: Milkywhale
Órætt algleymi/ Liminal States
Verk eftir Verk eftir Margréti Söru Guðjónsdóttur
Að vera horfandi að verkum Margrétar Söru er einsog að horfa inn í fljótandi spegil. Hér líður tíminn á annan hátt en við erum vön. Nærvera dansaranna á sviðinu, sviðsmynd og tónlist bjóða okkur að halla okkur inn í spennandi flæmi þar sem innri og ytri veruleiki fljóta saman og okkur er boðið inn í kraftmikla og dáleiðandi upplifun.
Höfundur: Margrét Sara Guðjónsdóttir
Dansarar: Elín Signý Ragnarsdóttir, Erna Gunnarsdóttir, Félix Urbina Alejandre, Una Björg Bjarnadóttir
Tónlist: Peter Rehberg
Ljósahönnun: Jóhann Friðrik Ágústsson
Sviðsmynd: Margrét Sara Guðjónsdóttir
Búningar: Karen Briem