Jólaóratoría J.S. Bach í Eldborg

Harpa

29. desember

Miðaverð frá

3.900 kr.

Lokatónleikar Listvinafélagsins – einstakur viðburður – Jólaóratórían í Hörpu

Mótettukórinn, Schola Cantorum, Alþjóðlega barokksveitin í Reykjavík ásamt einsöngvurum flytja Jólaóratóríuna eftir Johann Sebastian Bach í Eldborg Hörpu sunnudaginn 29. desember kl. 17.

Þessir glæsilegu hátíðartónleikar verða lokatónleikar á 42 ára starfsferli Listvinafélagsins í Reykjavík, áður Listvinafélags Hallgrímskirkju, og lýkur þannig einstökum kafla í menningarsögu þjóðarinnar.

Mótettukórinn og Schola Cantorum syngja Jólaóratóríuna í fyrsta sinn saman en Mótettukórinn flutti verkið seinast árið 2021 í Hörpu við mikla hrifningu áheyrenda og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónlistarflytjandi ársins 2021 fyrir flutninginn. Alþjóðlega barokksveitin í Reykjavík flytur nú Jólaóratóríuna í 6. sinn á vegum Listvinafélagsins, en barokksveitin, sem skipuð er afburða hjóðfæraleikurum bæði frá Íslandi og víða að úr heiminum, hefur ávallt fengið mikið lof fyrir leik sinn og margir meðlima hennar starfa með frægustu barokksveitum heims. Konsertmeistari er hinn frábæri finnski fiðluleikari Tuomo Suni sem leitt hefur barokksveitina á tónleikum hennar undir stjórn Harðar Áskelssonar undanfarin ár af einstakri fagmennsku.

Einsöngvarar á tónleikunum eru allir í fremstu röð: Herdís Anna Jónasdóttir sópran, hinn rómaði enski kontratenór Alex Potter, Jóhann Kristinsson bassi og Benedikt Kristjánsson tenór sem syngur hlutverk guðspjallamannsins og einsöngsaríur ásamt því að stjórna kór og hljómsveit.

Jólaóratóría Bachs er án efa frægasta tónverk jólanna og er flutt um allan heim á aðventu og jólum. Verkið segir söguna af fæðingu Jesú á einstaklega áhrifamikinn og hrífandi hátt.

Með flutningi Jólaóratóríunnar gefur Listvinafélagið íslenskum tónleikagestum kost á að upplifa eitt af stórvirkjum tónbókmenntanna í flutningi einvalaliðs hljóðfæraleikara sem hafa sérhæft sig í barokkflutningi og framúrskarandi einsöngvara og kóra. Fluttar verða kantötur I-III og V og tekur hver kantata u.þ.b. 30 mínútur í flutningi.

Tónleikarnir eru um 2 og 1/2 klst með hléi. Flytjendur eru alls um 100 – 70 manna kór, 27 hljóðfæraleikarar, 4 einsöngvarar og stjórnandi.

Flytjendur:
Herdís Anna Jónasdóttir sópran
Alex Potter kontratenór
Benedikt Kristjánsson tenór
Jóhann Kristinsson bassi

Mótettukórinn
Schola Cantorum

Alþjóðlega barokksveitin í Reykjavík
Konsertmeistari: Tuomo Suni

Stjórnandi:
Benedikt Kristjánsson

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger