Þorpið sefur | Tíbrá

Salurinn

27. október

Miðaverð frá

3.900 kr.

Sígildir söngvasveigar og þjóðlög ólíkra heima í túlkun mezzósópransöngkonunnar Hildigunnar Einarsdóttur og Guðrúnar Dalíu Salómonsdóttur, píanóleikara.

Hér hljóma sjaldheyrðir en áhrifaríkir lagaflokkar eftir Benjamin Britten, Þorkel Sigurbjörnsson og Maurice Ravel auk þjóðlagaútsetninga úr ýmsum áttum.

Söngvasveigur Brittens, Charm of Lullabies (1947) hverfist um nóttina og býr yfir víðfeðmu litrófi og mögnuðum andstæðum en ljóðin eru sótt til nokkurra höfuðskálda Breta svo sem William Blake og Robert Burns. Lagaflokkur Þorkels Sigurbjörnssonar, Níu ljóð úr Þorpinu, var frumfluttur af Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og tónskáldinu á Listahátíð í Reykjavík 1982. Yrkisefnið er að mestu sótt í tímamótaverkið Þorpið (1946) eftir Jón úr Vör þar sem dregnar eru upp ljóslifandi myndir af lífsbaráttu í íslensku sjávarþorpi í kringum kreppuárin. Svipmikil grísk þjóðlög og þjóðvísur eru meginuppistaðan í Fimm, vinsælum, grískum þjóðlögum (1907) eftir Maurice Ravel en á tónleikunum hljóma einnig tregafull og grípandi þjóðlög, íslensk og ensk, í útsetningum Jórunnar Viðar, Þorkels Sigurbjörnssonar og Benjamin Britten.

Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 12:30. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.

Efnisskrá
Benjamin Britten (1913 – 1976)
A Charm of Lullabies
Maurice Ravel (1875 – 1937)
5 Greque populaire
Þorkell Sigurbjörnsson (1938 – 2013)
Níu lög úr Þorpinu
Þjóðlagaútsetningar eftir Jórunni Viðar, Þorkel Sigurbjörnsson og Benjamin Britten

Tónleikarnir eru styrktir af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger