Tölvuleikjatónlist með Sinfó

Harpa

13. - 14. september

Sala hefst

22. nóvember 2024, 09:46

()

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Eímear Noonehljómsveitarstjóri

Söngsveitin FílharmóníaMagnús Ragnarssonkórstjóri

Tölvuleikir eru gróskumikill og litskrúðugur geiri menningarlífsins þar sem tónlistin leikur oftar en ekki mikilvægt hlutverk.Hún á ríkan þátt í að skapa veröld þar sem leikurinn á sér stað, tónlistin mótar andrúmsloft leiksins og framvindu - og tilfinningalegt ástand spilarans um leið. Tónleikar þar sem sinfóníuhljómsveitir leika þekkta og vinsæla tónlist úr tölvuleikjum hafa notið mikilla vinsælda um allan heim síðustu ár og hafa margir tölvuleikjaunnendur beðið þess með mikilli eftirvæntingu að Sinfóníuhljómsveit Íslands fetaði í þau fótspor. 

Á þessum tölvuleikjatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands fer hljómsveitin undir stjórn Eímear Noone með okkur í stór­kostlegt ferðalag um fjarlæga framtíð, vandasöm völundarhús, töfraheima og hamfaraveröld í gegnum magnaða tónlist úr tölvuleikjum á borð við, Kingdom Hearts, The Last of Us, Fortnite, Civilisation VI, Sea of Thieves, Resident Evil V, Call of Duty: Modern Warfare III, Hades, Baldur’s Gate: The Dark Alliance II, Fallout IV og Starfield. Þá má nefna að áhrifamikil tónlist úr íslenska tölvuleiknum Eve Online mun einnig hljóma á tónleikum. 

Hin írska Eímear Noone er margverðlaunað tölvuleikjatónskáld og hljómsveitarstjóri sem hefur ekki aðeins samið tónlist við vinsæla tölvuleiki á borð við World of Warcraft og Overwatch heldur kynnir hún og stjórnar reglulega tölvuleikjatónleikum með mörgum af fremstu sinfóníuhljómsveitum heims

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger