Síðustu Aldamótatónleikarnir

ARG viðburðir

25. október

Ekkert er endalaust og allt tekur enda, líka góðar og skemmtilegar hugmyndir.

Síðustu Aldamótatónleikarnir verða haldnir á 3 stöðum í haust, Reykjanesbæ, Reykjavík og Akureyri.

Þau sem fram koma á tónleikunum í íþróttahöllinni á Akureyri eru:

Birgitta Haukdal
Hreimur
Magni
Jónsi
Gunni Óla
Einar Ágúst

Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa verið í hljómsveitum sem voru gríðarlega vinsælar og virkar í kringum síðustu aldarmót. Og gott betur en það, því flestir söngvararnir eru enn starfandi sem tónlistarfólk.

Tónleikarnir verða tvískiptir, fyrir hlé munu ballöðurnar og rólegu lögin verða flutt en eftir hlé verður allt gert vitlaust og talið í hverja sprengjuna á fætur annarri

Hljómsveitarstjóri verður hinn eini sanni Viggi úr Írafár og mun hann ásamt nokkrum af færustu hljóðfæraleikurum landsins sjá til þess að allur flutningur verði upp á tíu.

Þessir tónleikar eru unnir í góðu samstarfi við Gull léttöl

*Aldamótatónleikarnir er skráð vörumerki hjá Hugverkastou og í eigu ARG viðburða

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger