Yung Lean í Eldborg

Harpa

25. október

Miðaverð frá

5.990 kr.

Orka í samstarfi við Garcia Events, Nova, Domino’s, Joe & the Juice og Tuborg kynna með stolti: Yung Lean í Eldborg, Hörpu þann 25.Október.

Jonatan Leandoer, betur þekktur sem Yung Lean er af mörgum talinn einn áhrifamesti hip hop tónlistarmaður 21. aldarinnar. Eftir að hafa skotist upp á stjörnuhimininn árið 2013, þá aðeins 17 ára, með laginu “Ginseng Strip 2002”, hefur hann gefið út feykivinsælar plötur á borð við Unknown Memory, Warlord og Stranger þar sem finna má lög á borð við “Yoshi City”, “Red Bottom Sky” og “Agony” svo einhver séu nefnd auk fjölmargra annarra sem notið hafa gríðarlegra vinsælda á heimsvísu. Meðal samstarfsfólks hans á undanförnum árum má nefna Frank Ocean, Travis Scott, Skrillex og FKA Twigs.

Jonatan er óumdeildur frumkvöðull í tónlistinni sem hefur ásamt samstarfsmönnum sínum oft kenndum við Sad Boys frá upphafi ferils síns komið hlustendum á óvart með sinni einskæru snilld. Yung Lean hefur áður heimsótt Íslands og spilað í Hörpu og Kaplakrika við frábærar undirtektir. Gestir á tónleikunum í Eldborg mega búast við að sjá einn af risum evrópsks tónlistarlífs í fantaformi, eitthvað sem enginn tónlistarunnandi má láta framhjá sér fara.

Athugið að takmarkað magn miða er í boði.18 ára aldurstakmark er á tónleikana

Skráning á póstlista Garcia Events

Hlustaðu á Yung Lean

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger