© 2024 Tix Miðasala
Jarðböðin, Mývatni
•
31. desember
Miðaverð frá
6.900 kr.
Jarðböðin við Mývatn opnuðu þann 30. júní 2004 og eru staðsett við Jarðbaðshóla, 4 kílómetra frá þorpinu Reykjahlíð. Sá staður var ekki valinn af handahófi því þar hafa verið stunduð heit jarðböð til heilsubótar allt frá landnámsöld. Jarðböðin bjóða upp á baðlón, heitan pott, bar og náttúruleg gufuböð, þar sem gufan streymir óhindruð um loftgöt í gólfinu og stýrist af veðri og vindum. Barinn er staðsettur ofan í lóninu og býður upp á óáfenga og áfenga drykki. Jarðhitavatnið er frábært til böðunar, það er einstaklega steinefnaríkt og basískt og húðin verður silkimjúk.
Gestir Jarðbaðanna geta sest niður fyrir eða eftir bað og notið léttra veitinga í opnum og björtum sal, með frábæru útsýni yfir Mývatnssveit. Á sólardögum er upplagt að setjast á útisvæðið, fá sér súpu og salat og njóta veðurblíðunnar.
Jarðböðin eru kjörinn staður fyrir þá sem njóta þess að vera í beinni snertingu við náttúruna, slaka á og endurnæra líkama og sál.
Gjafabréf 1 – Slökun
Aðgangur í Jarðböðin við Mývatn
Verð per mann 6.900,-
Gjafabréfið gildir í fjögur ár
Gjafabréf 2 – Vellíðan
Aðgangur í Jarðböðin við Mývatn + drykkur
Verð per mann 8.100,-
Gjafabréfið gildir í fjögur ár
Gjafabréf 3 – Upplifun
Aðgangur í Jarðböðin við Mývatn + drykkur, baðsloppur og handklæði
Verð per mann 9.900,-
Gjafabréfið gildir í fjögur ár