© 2026 Tix Ticketing
Hlégarður
•
November 11
Ticket prices from
ISK 8,990




Tvíeykið knáa GDRN og Magnús Jóhann hafa komið víða við í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár. Hljómplötur þeirra, Tíu íslensk sönglög (2022) og Nokkur jólaleg lög (2024) hafa notið mikilla vinsælda og sú fyrrnefnda varð nýverið að platínuplötu. Síðastliðin tvö ár hafa jólatónleikar þeirra slegið í gegn og í ár ætla þau að tjalda öllu til í Hlégarði. Þar mun fögur rödd GDRN blandast mjúkum píanóleik Magnúsar og hátíðarandinn svífa yfir vötnum. Ekki missa af friðsælu andartaki rétt áður en jólin ganga í garð.

