Jólatónleikar Kórs Njarðvíkurkirkju - Heyrið óma hátt um jörð

Hljómahöll

•

December 9

Sale starts

November 3, 2026, 10:00 AM

(in 23 hours)

Meira en bara jólatónleikar!

Kór Njarðvíkurkirkju ætlar að gera sér glaðan dag í Hljómahöll þann 9. desember og bjóða upp á sannkallaða jólatónlistarveislu þar sem öllu verður tjaldað til!

Rúmlega fimmtíu söngvarar, fimm manna hljómsveit, fjögurra manna strengjakvartett og tuttugu einsöngvarar úr röðum kórfélaga munu fylla sviðið í Stapa og flytja fjölbreytta jólatónlist undir stjórn Rafns Hlíðkvists. Á dagskránni verða fallegar jólaperlur, kraftmiklar útsetningar og auðvitað nóg af þeirri gleði og orku sem einkennir Kór Njarðvíkurkirkju.

Í ár syngjum við líka fyrir hjartans mál

Allur ágóði tónleikanna rennur til kaupa á nýju brjóstaskimunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Málefnið stendur kórnum sérstaklega nærri eftir að ein úr hópnum hefur tekist á við brjóstakrabbamein á árinu.

Kórinn hefur heitið einni milljón króna til söfnunarinnar, sem Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) standa fyrir, og ætlar að leggja allt í sölurnar til að standa við það loforð.

Við vonum að þið takið þátt í þessari einstöku kvöldstund með okkur, njótið tónlistarinnar og hjálpið okkur um leið að tryggja að konur á Suðurnesjum geti sótt brjóstaskimun í heimabyggð.

Við ætlum að þenja brjóstin, fylla Hljómahöll af söng og láta óma hátt um jörð að konur á Suðurnesjum eigi að geta sótt brjóstaskimun í heimabyggð!

Flytjendur

Kór Njarðvíkurkirkju og einsöngvarar úr röðum kórfélaga

Tónlistarstjóri: Rafn Hlíðkvist

Gítar: Þorvarður Ólafsson

Bassi: Jón Árni Benediktsson

Trommur: Þorvaldur Halldórsson

Ásláttur: Magnús Már Newman

Meðlimir úr strengjasveitinni Spiccato:

Martin Frewer og Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir, fiðlur

Þórunn Harðardóttir, víóla

Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir, selló


Hlökkum til að sjá ykkur og eiga saman ógleymanlega jólastund! ❤️

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger