Stella í orlofi fertug! | Q&A - Kaffihlaðborð - Kvikmyndasýning

Salurinn

•

November 22

Ticket prices from

ISK 9,900

Komdu með og fögnum saman fertugsafmæli einnar ástsælustu persónu íslensku kvikmyndasögunnar! Innifalið í miðaverði er Q&A, kaffihlaðborð og kvikmyndasýning!  

Afmælisveisla með öllu tilheyrandi í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 22. Nóvember frá kl. 14:00 - 17:00.

Gleðin hefst á samverustund með höfundi, leikstjóra og aðalstjörnu kvikmyndarinnar þar sem þær Guðný Halldórsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Edda Björgvins og Sólveig Arnarsdóttir sitja fyrir svörum og deila sögum og reynslu sinni af gerð myndarinnar.

Veitingastaðurinn Krónikan stendur svo fyrir veglegu kaffihlaðborði í anda Stellu þar sem á borðum verða glæsilegar brauðtertur, rjómaskreyttar hnallþórur og að sjálfsögðu laxahjarta fyrir Salómon.

Að lokum verður svo kvikmyndin sýnd og það sem kórónar þessa skemmtilegu veislu er að stórsöngkonan Diddú mætir á svæðið og flytur titillagið með áhorfendum.

Húsið opnar klukkutíma fyrr og að sjálfsögðu er opinn bar þar sem gestum gefst færi á að næla sér hressingu fyrir gleðina.

Einstakt tækifæri fyrir kynslóðirnar að sameinast og skála fyrir okkar konu, Stellu Löve.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger