Splunkuný tegund af erótík með Jólabjöllunum

Hljómahöll

•

November 29

Ticket prices from

ISK 5,900

Jólabjöllurnar snúa aftur og í þetta sinn með splunkunýja tegund af erótík!

Sönghópurinn sem hefur glatt, hneykslað og kitlað hláturtaugar landsmanna í meira en áratug býður til stórskemmtilegra jólatónleika sunnudaginn 29. nóvember kl. 19:30 í Hljómahöll í Reykjanesbæ.

Á efnisskránni verður að venju góð blanda af eldri lögum og glænýjum sem hafa fengið hina sérstæðu Jólabjöllumeðferð. Klassísk lög fá nýtt líf, textarnir fara gjarnan þangað sem aðrir þora ekki og fátt ef nokkuð er heilagt.

Að venju verður líka æsispennandi happdrætti með glæsilegum vinningum og hægt verður að næla sér í spennandi varning á staðnum – tilvalið fyrir þau sem eiga allt.

Allir textar eru á íslensku – öll velkomin. Við bendum þó á að tónleikarnir henta ekki einstaklingum undir 20 ára aldri.

Komdu og kynntu þér splunkunýja tegund af erótík með Jólabjöllunum – við lofum að að jólin verða aldrei söm aftur.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger