Vandræðaskáld kynna: Aðför - ofsóknir og önnur áhugamál þjóðar

Múlaberg, Akureyri

•

October 24

Ticket prices from

ISK 4,990

Vandræðaskáld kynna: Aðför - ofsóknir og önnur áhugamál þjóðar

11 árum eftir að Útför sló í gegn og kom Vandræðaskáldum á kortið snúa þau aftur, beittari, fyndnari og fallegri en nokkru sinni fyrr. Með sínu beitta háði og skemmtanagildið að vopni tækla Vandræðaskáld stórmál samtímans á frumlegan, en umfram allt, sprenghlægilegan hátt í revíunni Aðför - ofsóknir og önnur áhugamál þjóðar. Það eru aðfarir að öllu í gangi;íslenskunni, menningunni, og allskonar dóti sem enginn er búinn að kynna sér almennilega, en allir hafa skoðun á. Þar koma Vandræðaskáld til bjargar - þau, eins og allir, eru nefnilega einmitt alveg að fara gera eitthvað í sínum málum og annarra.

Vandræðaskáld og þeirra kolsvarti húmor hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin. Þau hafa komið fram á skemmtunum um allt land, í sjónvarpi auk þess sem lög þeirra hafa notið fádæma vinsælda á samfélagsmiðlum í gegnum árin. Vandræðaskáld eru leikararnir Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason, en bæði hafa auk þess vakið mikla athygli og unnið til verðlauna fyrir störf sín utan Vandræðaskálda.


Það er 12 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger