© 2026 Tix Ticketing
Reykjavík
•
October 9
Ticket prices from
ISK 8,900




Tónlistarhátíðin ErkiTíð er vettvangur fyrir sköpun og tjáningu í tónlist með nýrri tækni og opnar sýn inn í framtíðina, með sterkri viðspyrnu í verkum frumherja íslenskrar tónlistar.
ErkiTíð hefur frá upphafi lagt mesta áherslu á íslenska tónlist og nýsköpun á því sviði. Hún var fyrst haldin árið 1994 af tilefni Lýðveldisafmælis Íslands þar sem fluttar voru allar helstu raf- og tölvutónsmíðar íslenskra tónskálda frá upphafi.
Tónlistarhátíðin ErkiTíð er opin fyrir alla óháð kyni, aldri eða uppruna. Eitt af aðalmarkmiðunum hefur verið að tengja saman fortíð, nútíð og framtíð. Þá er veigamikill þáttur ErkiTíðar nýsköpun á sviði tónlistar þar sem mörk á milli listgreina er oft máð út og sem skapar fjölbreyttari menningu.
Í gegnum tíðina hafa tugir nýrra íslenskra tónverka verið samin og frumflutt að tilhlutan ErkiTíðar. Með fjöbreytileika sínum eflir ErkiTíð menningu og mannlíf Íslands og stuðlar að litríkara menningarlífi hverju sinni.
ErkiTíð hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2022 fyrir tónlistarviðburð ársins.

