Djúpið

Tjarnarbíó

2 dates

Ticket prices from

ISK 6,900

Drottinn minn og Guð minn. Þegar ég nú ræ til fiskveiða og finn vanmátt minn og

veikleika skipsins gegn huldum kröftum lofts og lagar, þá lyfti ég upp til þín augum

trúar og vonar og bið þig í Jesú nafni að leiða oss á djúpið, blessa oss að vorum

veiðum og vernda oss, að vér aftur farsællega heim til vor náum með þá björg, sem

þér þóknast að gefa oss.


Úr sjóferðarbæn Friðriks Jónssonar stýrimanns frá Bolungarvík. (1921-2007.)


Ungur sjómaður á sér draum:

Hann dreymir um að flytja út frá mömmu og pabba.

Hann dreymir um að eignast 74 Plymouth Barracuda.

Hann dreymir um að bjóða stelpunni sem hann er skotinn í á deit.


Þessi ungi sjómaður lendir svo í hræðilegu sjóslysi 6 kílómetra fyrir utan íslandsstrendur.

Hans eina björg er að synda í land og það sem heldur horum á floti á ísköldu djúpinu eru draumar hans og vonir um framtíðina.


Einleikurinn „Djúpið“ eftir Jón Atla Jónasson var frumsýndur í Borgarleikhúsinu árið 2009 þar sem Ingvar E. Sigurðsson lék sjómanninn unga á eftirminnilegan hátt.

Árið 2012 kom svo út samnefnd kvikmynd í leikstjórn Baltasars Kormáks með Ólafi Darra Ólafssyni í aðalhlutverki, og er sú mynd íslendingum fersk í minni.


Sagan er byggð á sönnum atburðum sem hentu áhöfnina á Hellisey VE 503 11. mars árið 1984 þar sem skipið sökk 6 kílómetra fyrir utan íslandsstrendur.


Höfundur: Jón Atli Jónasson


Leikari: Vilberg Andri Pálsson


Leikstjóri: Ebba Katrín Finnsdóttir


Tónlist: Jóhannes Damian Patreksson


Plagat og Grafík: Stefanía Elín Linnet


Sett upp með leyfi Nordiska ApS og Jóns Atla Jónassonar

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger