© 2026 Tix Ticketing
Tónabíó, Skipholt 33
•
November 26
Ticket prices from
ISK 3,990




Hrafnablót blæs til tónleika 26. nóvember í Tónabíói til að fagna útgáfu fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar, Guðlaugar sögu. Á tónleikunum verður platan flutt í heild sinni ásamt nokkrum nýjum lögum.
Hrafnablót spilar göldrum þrunginn þjóðlagamálm. Hljómsveitin var stofnuð árið 2024 og sækir innblástur í myrkur og ljós íslenskrar galdrasögu, þjóðsagna og Íslendingasaga, þræðir saman þung riff og þjóðleg áhrif og skapar þannig hljóðheim með fastar rætur í íslenskri þjóðmenningu.
Guðlaugar saga er 48 mínútna heildarverk sem segir sögu Guðlaugar, ungrar konu sem fer á djammið í Reykjavík. Þar dregur dularfull dís hana inn í fornt helgihald og þegar hún vaknar á ný er hún stödd á vígvelli á landnámsöld með ekkert meðferðis nema staka rafbyssu. Guðlaug lendir í höndum stríðandi fylkinga og er flutt vestur á firði. Þar kemst hún fljótt að því að sjarmi hennar og óvænt staða í þessum framandi heimi veita henni meiri áhrif en hún hefði getað ímyndað sér.
Platan kemur út á allar helstu streymisveitur ásamt CD og vínyl þann 11. september
Guðlaugar saga var hljóðblönduð af Helga Durhuus hjá Stúdíó Helvíti og hljómjöfnuð af Lasse Lammert, sem hefur meðal annars annast hljómjöfnun fyrir hljómsveitir á borð við Alestorm, Gloryhammer og Wind Rose.
Sérstakir gestir á tónleikunum eru Drungi og Fortíð. Þetta verður því kvöld sem vert er að taka frá í dagatalinu.
Dyrnar opna klukkan 19:00
20:00 Drungi
21:00 Fortíð
22:00 Hrafnablót
MIðaverð 3990

