© 2026 Tix Ticketing

Hannesarholt
•
October 22
Ticket prices from
ISK 4,900




Á þessum tónleikum kemur fram Dúó Sandur. Dúo Sand skipa frændsystkynin Einar Bjartur Egilsson píanóleikari og sópransöngkonan Gerður Bolladóttir. Á undanförnum árum hafa þau komið fram víðsvegar um landið og flutt fjölbreytta tónlist en þó aðallega eigin tónsmíðar.
Einar og Gerður eiga bæði ættir að rekja til Sands í Aðaldal og munu að því tilefni flytja nær eingöngu frumsamin lög við ljóð forfeðra sinna, ljóðskáldanna frá Sandi í Aðaldal. Ljóðskáldin sem um ræðir eru systkinin Þórunn Friðjónsdóttir, Sigurjón Friðjónsson og Guðmundur Friðjónsson og síðan Heiðrekur Guðmundsson, Bolli Gústavsson og Gerður Bolladóttir. Þess má geta að Guðmundur Friðjónsson var langafi Einars Bjarts og Þórunn Friðjónsdóttir langamma Gerðar. Inn á milli laganna flytur Einar Bjartur svo eigin ljóðræn píanóverk sem fléttast fallega saman við sönglögin.
Flest ljóðanna fjalla um árstíðirnar - Bjartar sumarnætur, kvíða fyrir vetrinum og þrá eftir vori og sumri sem einkenndi oft ljóð frá þessum tíma.
Um flytjendur:
Gerður Bolladóttir
Gerður Bolladóttir sópran söngkona og tónskáld, hóf formlegt söngnám 18 ára gömul við Tónlistarskólann á Akureyri. Hún lauk burtfararprófi í söng undir handleiðslu Sigurðar Demetz Franzsonar og stundaði framhaldsnám við Indiana University, School of Music í Bloomington í Bandaríkjunum, þar sem helstu kennarar hennar voru Martina Arroyo og Klara Barlow. Gerður hefur haldið tónleika víðsvegar á Íslandi, Bandaríkjunum, Grænlandi, Færeyjum og Pétursborg.
Gerður hefur verið mjög virk í kammertónlist í gegnum árin og stofnaði Tríó Ljóm stuttu eftir að hún kom heim úr námi árið 2000. Fyrir 12 árum síðan byrjaði Gerður að semja sönglög sem enduðu í efnisskrá sem hún flutti í Listasafni Íslands árið 2017, og tónleikum í Pétursborg árið 2019. Árið 2004 kom út diskurinn Jón Arason in memoriam með Gerði og Kára Þormar orgelleikara. Sömuleiðis gaf hún út geisladisk með íslenskum þjóðlögum í útsetningum Ferdinand Rauter og Önnu Þorvaldsdóttur árið 2006. Síðustu verkefni Gerðar voru hlutverk í óperu um Vigdísi Finnbogadóttur eftir Alexöndru Chernyshovu árið 2021, tónleikar með lögum Sigfúsar Halldórssonar vorið 2023 og svo tónleikar víðsvegar um land með eigin sönglögum undanfarin ár ásamt Einari Bjarti.
Einar Bjartur Egilsson
Einar Bjartur Egilsson hóf píanónám 7 ára í Tónlistarskólanum í Reykjahlíð við Mývatn. Síðar fluttist hann til Reykjavíkur og stundaði nám í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Listaháskóla Íslands. Hann útskrifaðist þaðan vorið 2013 og lék meðal annars einleik í píanókonsert F. Poulencs með Sinfóníuhljómsveit Íslands það ár.
Frá 2013 - 2015 stundaði hann meistaranám í Konservatoríinu í Maastricht, Hollandi og í desember 2014 hlaut hann styrk úr Minningarsjóði um Birgi Einarsson. Einar hefur samið tónlist fyrir nokkrar stuttmyndir en síðla árs 2015 gaf hann út hljómplötuna Heimkoma, sína fyrstu plötu með eigin tónsmíðum. Hann hefur spilað á tónlistarhátíðum í Hollandi og á Íslandi og starfað með ýmsum kórum bæði þar og hér heima.
Núverið starfar Einar aðallega sem meðleikari með ýmsum tónlistarmönnum, nemendum og kórum. Hann heldur tónleika reglulega ásamt því að spila einleiksverk annað slagið. Undanfarin ár hefur hann gefið út tvær hljómplötur með píanóverkum eftir svissneska tónskáldið Frank Baumann og gaf einnig út breiðskífuna Kyrrð með eigin verkum sumarið 2022. Nýlega hélt hann tvenna einleikstónleika á Íslandi og hefur einnig spilað í ýmsum leiksýningum, meðal annars í Þjóðleikhúskjallaranum.

