Darlingarnir taka Clapton og kó á íslensku

Hannesarholt

October 11

Ticket prices from

ISK 4,900

Daringarnir eru miklir íslenskumenn svo þeir drifu sig í það gustungaverk að snara nokkrum lögum Claptons, Bítlanna, The Eagles og fleiri á okkar ylhýru. Ekki nóg með það heldur hafa mörg lögin verið staðfærð, þá aðallega á Bíldudal, þannig að Penny Lane verður að Vegamótum og My Michelle verður að Sirrý litlu. Ekki má svo gleyma verbúðinni á Dalbraut þar sem ýmislegt gerðist einsog sagt er frá í laginu sem The Eagles gerði frægt undir nafninu Hotel California. Einnig bregða þeir fyrir sig suður-amerískum söng, í anda Buena Vista Social Club, enda ekki annað hægt þegar sagt er frá hinum víðfræða Bingóstjóra þar vestur frá.

Darlingarnir eru: Eysteinn Eysteinsson, á trommum, Georg Grundfjörð á bassa, og svo bílddælingarnir Jón Sigurður Eyjólfsson, sem syngur og leikur á gítar, og Pétur Valgarð Pétursson gítarleikari. Einnig segja þeir kumpánar sögur af söngvum þessum svo allir sem ættaðir eru utan þjónustusvæðis nái samhenginu.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger