Ljótikór - Samferða Magnúsi Eiríkssyni

September 17

Ticket prices from

ISK 5,000

Ljótikór leiðir áheyrendur í ferðalag inn í einstakan söngheim Magnúsar Eiríkssonar.  

Þar sem færri komust að en vildu á tónleika Ljótakórs tileinkaða tónskáldinu og lagasmiðnum Magnúsi Eiríkssyni í maí s.l. verða haldnir aukatónleikar fimmtudaginn 17. september kl. 20 í Tónabíó.  

Á efnisskránni eru lög Magnúsar í glænýjum útsetningum og rifjaðar upp minningar sem tengjast lögum hans og þeirri lífsreynslu og tilfinningum sem textar hans bera með sér. Tónleikarnir eru þannig ekki aðeins flutningur á stórbrotnum og ástsælum lögum, heldur einnig samtal við verk Magnúsar og þær minningar sem tónlist hans vekur.   

Ljótikór hefur skapað sér sérstöðu fyrir óhefðbundna og lifandi tónleikaupplifun, þar sem tónlist, sviðsetningar og stemning mynda eina heild og þessir tónleikar eru engin undantekning á því.   

  

Allar útsetningar eru eftir Einar Jónsson, sem stýrir kórnum ásamt Nönnu Hlíf Ingvadóttur. Hljóðfæraleikarar eru Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari og Örn Ýmir Arason bassaleikari.

Sviðssetning er í höndum Vigdísar Jakobsdóttur og Ilmur María Stefánsdóttir hefur yfirumsjón með útliti tónleikanna. 

  

Ath. Viðburðurinn er sitjandi en ekki er selt í númeruð sæti. Við hvetjum því gesti til að mæta tímanlega.  

Miðasala á Tix.is  

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger