© 2026 Tix Ticketing

Salurinn
•
October 22
Ticket prices from
ISK 5,900




Flamencamiento Global Trio er skipað þremur einstaklega hæfileikaríkum tónlistarmönnum sem koma úr ólíkum áttum og mætast á miðri leið í kringum heillandi heim Flamenco.
Flamenco er lifandi listform frá Spáni með ríka sögu og hefðir og er nú jafnframt viðurkennt af heimsminjaskrá UNESCO sem mikilvæg menningararfleifð. Þessi viðburður veitir okkur einstakt sjónarhorn á þennan heillandi heim og fer með okkur í ferðalag um litróf tilfinninganna og inn í nýjar víddir tónlistarinnar á þann hátt sem áður hefur ekki sést á Íslandi.
Þessi tónlistarveisla byggist að mestu á hráefni gítarleikarans Yannick Corre (frá Frakklandi) og má segja að kryddin sem notuð eru frelsið úr heimi Jazztónlistarinnar ásamt fjölbreyttum litum og töktum Rómönsku Ameríku. Sannarlega er hér um að ræða eyrnakonfekt sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hér sér fara.
Ásamt gítarleikaranum Yannick Corre, koma fram með honum kontrabassaleikarinn Gaston Joya (frá Kúbu) og slagverksleikarinn Julio Alcocer (frá Venezuela).
Gaston er einn helsti kontrabassaleikari nýrrar kynslóðar frá Kúbu og hefur spilað með heimsþekktum nöfnum á borð við Buena Vista Social Club, Omara Portuondo og Sting! Hann er þekktur fyrir einstakt flæði milli ólíkra stíla og fyrir almennan léttleika.
Yannick hefur lært af mörgum af allra fremstu flamenco gítarleikurum svo sem Dani de Morón, Rafael Riqueni og Manolo Franco. Hann hefur unnið með flamenco listafólki á borð við Andrés Marín, Adela Campallo og Paquito Gonzalez og getið sér gott orð fyrir tónsmíðar og tónlistarstjórnun. Hann er tæknilega mjög fær á gítarinn og býr yfir miklum sköpunarkrafti og er ljúfur í lund.
Slagverksleikarinn Julio blandar saman ýmsum stílum saman við hefðbundna flamenco takta og má þar gæta áhrifa frá Afrískum, Karabískum og Venesúelskum töktum. Hann hefur víðtæka reynslu að spila með mjög stórum nöfnum innan flamenco heimsins og má þar helst nefna Paco Peña og Dani de Morón. Báðir tveir einstaklega framúrskarandi fulltrúar eldri og yngri kynslóðar flamenco gítarleikara á Spáni. Julio hefur einnig tekið þátt í dansframleiðslu unnið að ýmsum verkefnum á alþjóðlegum vettvangi.
Það er því sannur heiður að fá til landsins þetta einstaka tríó og óhætt að segja að uppskriftin gefi sterk fyrirheit um einstaka veislu. Nafnið á þessu tónlistarverkefni hefur þá einnig tilskotun í spænskt hugtak um að hitna fer í kolunum og það er ekki ólíklegt að sólin komi til landsins með tríóinu og komi sér fyrir innra með okkur meðan á tónleikunum stendur eitthvað frameftir haustinu.

