© 2026 Tix Ticketing
Tjarnarbíó
•
24. - October 25
Ticket prices from
ISK 6,900




ÁST er nýtt íslenskt kórverk sem tekst á við ástina í öllum sínum
myndum. Fjölskyldubönd, áföll, erfðir, hinseginleiki og allar hliðar
ástarinnar, speglaðar í þekktum dægurlögum.
VOX Rangárþing er fjölmenningarlegur kór. Kórfélagar koma frá
fleiri en tíu löndum. Hvert og eitt hefur ólíkan bakgrunn, menningu
og reynsluheim.
Í ÁST eru raunverulegar og sannar sögur kórsins settar á svið.
Kórfélagar segja sínar eigin sögur og sögur hvers annars. Tónlistin
styður og sameinar flytjendur og áhorfendur.
Leikstjórn: Gábor Tengely
Tónlistarstjóri og Kórstjóri: Arilíus Marselínuson
Tónlistarráðgjafi: Sandra Rún Jónsdóttir
Listrænn stjórnandi: Harpa Rún Kristjánsdóttir
Flytjendur: VOX Rangárþing

