SOFFÍA BJÖRG & VINIR

September 4

Ticket prices from

ISK 3,900

  SOFFÍA BJÖRG & VINIR  

  

Soffía Björg & vinir verða á Snorra Bar föstudagskvöldið 4. september.

Boðið verður uppá ískalt eyðimerkurrokk, spilagleði og súrsæta sveitasöngva.

Einungis 3990 kr aðgangseyrir og drykkur er innifalinn.

Soffía er hæfileikaríkur söngvari, lagahöfundur, gítarleikari og tónskáld frá Borgarfirði. Hún hefur hlotið víðtæka menntun hjá Söngskóla Reykjavíkur, FÍH og Listaháskóla Íslands og hefur mótað sér einstakan tónlistarstíl sem byggist bæði á tæknilegri færni og einlægri tjáningu.


Á ferli sínum hefur Soffía tekið þátt í fjölbreyttum tónlistarverkefnum. Á árunum 2010–2014 var hún meðlimur í bluegrass-sveitinni Brother Grass, sem ferðaðist víða um Ísland. Sólóferill hennar hefur einnig blómstrað; hún hefur gefið út tvær plötur, Soffía Björg og The Company You Keep, og vinnur nú að sinni þriðju plötu.


Tónlist hennar spannar allt frá nýjum útgáfum af eldri lögum til frumsaminna verka og samstarfsverkefna. Þar á meðal er lagið I Lie, sem fékk mikla athygli í útvarpi og líka fyrir tónlistarmyndband lagsins. Einnig má nefna útgáfu hennar á lagi sem amma hennar, Soffía Karlsdóttir gerði frægt, Það er draumur að vera með dáta, í nýrri útgáfu sem ber heitið Draumur að fara í bæinn, auk lagsins Bonafide, sem hún flutti ásamt Krumma Björgvins í sjónvarpsþættinum Hljómskálinn.


Nýlega hefur Soffía gefið út þrjú smáskífulög af væntanlegri plötu, þar á meðal lagið Dreamcatcher.


Með Soffíu á Snorra Bar verða:

Fríða Dís – bassi og bakraddir

Magnús Trygvason Eliassen – trommur

Pétur Ben – gítar og bakraddir

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger