Heimsókn í leikhúsið hennar Thalíu

Tjarnarbíó

2 dates

Ticket prices from

ISK 4,900

Barnaleikritið Heimsókn í leikhúsið hennar Thalíu er ferðalag inn í ævintýraheim leikhússins. Áhorfendur kynnast litríkum  persónum sem vinna á bak við tjöldin og hitta leiklistargyðjuna Thalíu sem segir þeim frá töfrum leiklistarinnar. Þungamiðja verksins er leikhúsið sjálft og fólkið sem vinnur þar. 

Áhorfendur rekast á leikhússtjórann, fá að fylgjast með leikaranum æfa leiktextann sinn og fá innsýn í vinnu leikstjórans, sminkunnar (förðunarmeistarans) og leikmynda- og búningahönnuðarins. Verkið hefst í anddyri leikhússins og ferðast með áhorfendur inn á leiksviðið þar sem óvæntir atburðir eiga sér stað. Í gegnum verkið kynnast ungir áhorfendur leikhúsinu og verða um leið þátttakendur í spennandi ævintýri þar sem drekar, prinsar og prinsessur koma við sögu. 

Verkið hlaut styrk frá Sviðslistasjóði og List fyrir alla.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger