© 2026 Tix Ticketing
Tjarnarbíó
•
2 dates
Ticket prices from
ISK 4,900




Barnaleikritið Heimsókn í leikhúsið hennar Thalíu er ferðalag inn í ævintýraheim leikhússins. Áhorfendur kynnast litríkum persónum sem vinna á bak við tjöldin og hitta leiklistargyðjuna Thalíu sem segir þeim frá töfrum leiklistarinnar. Þungamiðja verksins er leikhúsið sjálft og fólkið sem vinnur þar.
Áhorfendur rekast á leikhússtjórann, fá að fylgjast með leikaranum æfa leiktextann sinn og fá innsýn í vinnu leikstjórans, sminkunnar (förðunarmeistarans) og leikmynda- og búningahönnuðarins. Verkið hefst í anddyri leikhússins og ferðast með áhorfendur inn á leiksviðið þar sem óvæntir atburðir eiga sér stað. Í gegnum verkið kynnast ungir áhorfendur leikhúsinu og verða um leið þátttakendur í spennandi ævintýri þar sem drekar, prinsar og prinsessur koma við sögu.
Verkið hlaut styrk frá Sviðslistasjóði og List fyrir alla.

