Anglorum Orpheus - Tónlist John Dowland

Hannesarholt

October 1

Ticket prices from

ISK 3,900

Hinn svokallaði „Anglorum Orpheus“ (Orfeus Englendinga) var frægasti lútuleikari síns tíma. Hér ræðir um John Dowland (1563 – 1626.) Á þessum tónleikum er ekki lútutónlist hans í forgrunni, heldur sönglög hans fyrir fjórar raddir. Þessi lög voru prentuð í sérstakri uppsetningu, þar sem söngvarar og lútuleikari gátu allir lesið úr sömu bók. Fyrsta bók Dowlands sló rækilega í gegn og var margoft prentuð á Englandi, en auk þess líktu margir útgefendur eftir uppsetningunni. Þrátt fyrir velgengni sína fékk Dowland aldrei stöðuna sem hann óskaði sér lengi við hirð Elísabetar I og starfaði í staðinn á meginlandi Evrópu, m.a. í Þýskalandi og við dönsku hirðina. Þar samdi hann söngtónlistina og sendi til Englands til prentunar. Í tónlist Dowlands ríkir oft tregafullur andi, en á tónleikunum hljóma einnig glaðleg lög: sum fjórradda, önnur tvíradda og enn önnur fyrir eina rödd með lútuundirleik.

Flytjendur:
Beinta Ingeborg Greve
Guðný Guðmundsdóttir
Orri Jónsson
Ólafur Freyr Birkisson
Sergio Coto Blanco


Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger