Síðasta Þjóðhátíðin?

August 2

Ticket prices from

ISK 1,874

SÍÐASTA ÞJÓÐHÁTÍÐIN?


Hvað gerist þegar tveir menn sem hafa skoðanir á nánast öllu fá til sín gesti sem eru ekki vanir að liggja á skoðunum sínum?
Þjóðmál blása til fyrsta og hinsta bjórkvöldsins á Þjóðhátíð um hábjartan dag. Þjóðhátíð hefur verið samofin lífi Eyjamanna frá árinu 1874 og skipað sérstakan sess í hugum og hjörtum þjóðarinnar.
Hinn kunni blaðamaður Stefán Einar Stefánsson, sem segir það sem hann hugsar á meðan aðrir þegja, og hinn skarpskyggni hagfræðingur Þórður Gunnarsson taka púlsinn á Eyjamönnum. Þeir fá til sín vel valda gesti í hispurslaust samtal um þjóðmálin, Þjóðhátíðina og allt það sem helst brennur á fólki.
Það er því óhætt að gera ráð fyrir að allt verði látið flakka.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger