© 2026 Tix Ticketing
•
August 14
Sale starts
July 20, 2026, 10:00 AM
(in 3 days)




Krummi á Hólmavík
Söngvaskáldið Krummi Björgvinsson heldur tónleika á Hólmavík í fyrsta sinn og kemur fram við opnun Byggðasafnsins á Hólmavík. Með honum á sviði verður gítarleikarinn Bjarni Sigurðarson.
Krummi hefur að undanförnu gefið út lög af væntanlegri plötu sinni sem kemur út í haust. Lögin hafa hlotið frábærar viðtökur, verið mikið spiluð í útvarpi og vakið verðskuldaða athygli bæði hér heima og erlendis.
Á tónleikunum mun Krummi flytja frumsamið efni af væntanlegri plötu ásamt eldri lögum og vel völdum ábreiðum. Kvöldið verður persónulegt, hlýlegt og notalegt þar sem farið verður um víðan völl í tónlistinni.
Þetta eru einstakir tónleikar við sérstakt tilefni, kvöldstund sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.

