The Reykjavík Chamber Music Society, No. 5

Harpa

April 4

Ticket prices from

ISK 5,500

Flytjendur:
Stefán Ragnar Höskuldsson, flauta
Katie Buckley, harpa
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Hulda Jónsdóttir, fiðla
Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla
Steiney Sigurðardóttir, selló

Það er mikið tilhlökkunarefni að Stefán Ragnar Höskuldsson, 1. flautuleikari Berlínarfílharmóníunnar komi fram í fyrsta sinn á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins.

Efnisskráin byggist á verkum fyrir flautu og hörpu, vinsæl dúósamsetning sem fjöldi tónskálda hefur samið fyrir síðan á 18. öld. Claude Debussy var þó einna fyrstur til að bæta víólu við dúóið árið 1915 og mynda þar með tríó, og fylgdu fjölmörg önnur tónskáld í fótspor hans á 20. öld.

Á fyrri hluta tónleikanna verða leikin tvö slík tríó: Sónata fyrir flautu, víólu og hörpu eftir Debussy og Garður gleði og sorgar eftir hina rússnesku Sofia Gubaidulina. Þetta verður Íslandsfrumflutningur á verki Gubaidulinu, samið árið 1980 eða um það leyti sem hún fór að njóta alþjóðlegrar hylli.

Eftir hlé flytja Stefán Ragnar og Katie Buckley, hörpuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Konsert fyrir flautu og hörpu í C-dúr eftir Mozart ásamt strengjakvartett í sérstakri útsetningu eftir Bob Litterell.

Kammermúsíkklúbburinn er í samstarfi við Sígilda sunnudaga í Hörpu.

Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum.

Sjá nánari upplýsingar og efnisskrá á heimasíðu Kammermúsíkklúbbsins, kammer.is

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger