The Reykjavík Chamber Music Society, No. 2

Harpa

October 25

Ticket prices from

ISK 5,500

Flytjendur:
Sigurbjörn Bernharðsson, fiðla
Gunnhildur Daðadóttir, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Rita Porfiris, víóla
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló

Á tónleikunum gefst einstakt tækifæri til að heyra tvö af mikilvægustu strengjatríóum 20. aldarinnar. Hinn tékkneski Gideon Klein samdi tríóið sitt árið 1944 í Theresienstadt fangabúðunum og lauk við það aðeins nokkrum dögum áður en hann var sendur þaðan til Auschwitz. Hinn rússneski Alfred Schnittke bjó og starfaði lengst af í Moskvu, en stundaði tónsmíðanám ungur að árum í Vínarborg þar sem hann heillaðist af tónskáldum seinni Vínarskólans. Strengjatríóið sitt tileinkaði hann einu þessara tónskálda, Alban Berg, þegar hundrað ár voru liðin frá fæðingu hans árið 1985.

Aðeins tveimur árum fyrr samdi Jón Nordal þriðja verkið sem flutt verður fyrir hlé, Dúó fyrir fiðlu og selló. Lokaverk tónleikanna verður eitt af síðustu kammerverkum Johannes Brahms, hinn magnaði Strengjakvintett nr. 2 í G-dúr, op. 111.

Flytjendur eru meðal fremstu íslenskra strengjaleikara en þar má sérstaklega nefna Sigurbjörn Bernharðsson, prófessor í fiðluleik við Oberlin háskóla í Bandaríkjunum. Áður en Sigurbjörn gerði kennslu að aðalstarfi var hann meðlimur í hinum virta Pacifica-strengjakvartett í 17 ár. Hann spilaði með kvartettinum á u.þ.b. 90 tónleikum á ári í öllum virtustu tónleikahúsum heims og hlaut Grammy verðlaun í flokknum Besti kammermúsíkflutningurinn árið 2009.

Kammermúsíkklúbburinn er í samstarfi við Sígilda sunnudaga í Hörpu.

Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum.

Sjá nánari upplýsingar og efnisskrá á heimasíðu Kammermúsíkklúbbsins, kammer.is

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger