Það sem enginn sagði mér

July 17

Sale starts

July 3, 2026, 12:00 PM

(in 21 hours)

Það sem enginn sagði mér

  

„Brjóstin springa út!“ - „Er þetta túrblóð?“ - „Ég hata skólasund.“

Vangaveltur Huldu voru margs konar á unglingsárunum og rifjar hún þær upp vel og vandlega. En þegar vel er að gáð leynast bældar minningar sem reynast erfiðar að forðast.

Það sem enginn sagði mér er persónulegur einleikur sem sameinar lifandi flutning og vídeóverk sem fjalla um mörk, samþykki og kynferðislega sjálfsmynd á unglingsárunum. Með húmor, nánd og leikrænni frásögn opnar verkið fyrir mikilvæga umræðu um kynfræðslu, væntingar og reynslu ungs fólks í samtímanum.

Verkið er eftir og leikið af Agnesi Emmu Sigurðardóttur

Kvikmyndataka og almenn aðstoð: Sverrir Jóhannsson

Sérstakar þakkir: Aron Martin Ásgerðarson

Framleiðsla: Reisa Creative í samstarfi við Skapandi Sumarstörf í Kópavogi

Sýningin er u.þ.b. 60 mínútur

A.T.H. Hafa skal í huga að umræða um kynferðislegt ofbeldi kemur fram.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger