Grand Finale – Lokatónleikar Reykholtshátíðar

Reykholtskirkja

July 26

Ticket prices from

ISK 4,500

  Grand Finale – Lokatónleikar Reykholtshátíðar  

 Á lokatónleikum Reykholtshátíðar koma nær allir flytjendur hátíðarinnar fram í fjölbreyttri dagskrá. Fyrri hluti tónleikanna býður áheyrendum upp á söng þriggja af okkar fremstu einsöngvurum, þeirra Arnheiðar Eiríksdóttur, Jóhanns Kristinssonar og Kristins Sigmundssonar, við meðleik Elenu Postumi. Munu þau flytja efnisskrá með söngverkum úr ýmsum áttum, bæði íslenskum og erlendum. Eftir hlé stíga strengjaleikarar hátíðarinnar á svið og ljúka Reykholtshátíð – hinni þrítugustu í röðinni – með flutningi á hinum stórkostlega Strengjasextett í B-dúr, op. 18 eftir Johannes Brahms.

Flytjendur:
Arnheiður Eiríksdóttir, mezzósópran
Jóhann Kristinsson, barítón
Kristinn Sigmundsson, bassi
Elena Postumi, píanó

Joaquín Páll Palomares, fiðla
Pétur Björnsson, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Guðbjartur Hákonarson, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló

Sjá nánar á heimasíðu Reykholtshátíðar, reykholtshatid.is       

Sjáumst á Reykholtshátíð!
Húsið opnar kl. 15:30

Miðaverð: 4.500 kr.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger