© 2026 Tix Ticketing
•
July 3
Ticket prices from
ISK 4,900




Sólarlag - lögin hennar Rúnu - Útgáfutónleikar
Sólarlag er vínylalbúm sem Guðrún Erlingsdóttir – Rúna gaf út 19.júní. Albúmið er jafnframt fyrsta útgáfa hennar. Á Sólarlagi er 19 lög og textar sem öll eru eftir Rúnu.
Til að fagna útgáfunni er slegið í útgáfutónleika á goslokum, föstudaginn 3. júlí kl. 18.30 í Eldheimum.
Lögin sem flutt fjölbreytt, Rokk, popp, jazz, blues, tregablues, gospel, kántrý, rólegar melódíur ofl.
Bandið hennar Rúnu skipa: Sigurgeir Sigmundsson, gítar og hljómsveitarstjórn, Birgir Nielsen, trommur, Dúni Geirsson, bassi og Þórir Ólafsson, hljómborð
Söngvarar: Sísí Ástþórsdóttir, Jóhanna Björk Gylfadóttir, Guðrún Erlingsdóttir, Tómas Guðmundsson, Drífa Nadia Thoroddsen, Gugga Lísa og Kolbrún Shalini Árnadóttir

