Á rauðu ljósi

Samkomuhúsið

28. - November 29

Ticket prices from

ISK 6,900

  Verið hress, alltaf með stress, bless! 

Kristín Þóra Haraldsdóttir mætir norður með geysivinsæla gamansýningu sína sem slegið  hefur rækilega í gegn í Þjóðleikhúsinu. Eftir 99 uppseldar sýningar í Kjallaranum var verkið  fært á Stóra sviðið – og nú gefst norðanmönnum loksins tækifæri til að sjá herlegheitin! 

Á rauðu ljósi er einnar konu sýning þar sem uppistand, einleikur og algjört hispursleysi renna  saman í eitt. Kristín talar á bráðfyndinn og einlægan hátt um stress, streitu, seiglu og þann  eilífa dugnað sem fylgir því að vera manneskja. Kristín Þóra er öllum hnútum kunnug hjá  LA, en hún var áður fastráðin við húsið og hefur síðan þá unnið til fjölda verðlauna fyrir leik  sinn á sviði og skjá  

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger