Daníel Bjarnason stjórnar Brahms

Menningarfélag Akureyrar

February 21

Sale starts

June 19, 2026, 11:00 AM

(in 15 hours)

  Daníel Bjarnason stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í flutningi tveggja af ástsælustu  verkum Johannes Brahms: 1. sinfóníunni og Tvöfalda konsertinum fyrir fiðlu og selló. 

Brahms er gjarnan talinn einn hinna þriggja stóru B-a tónlistarsögunnar — Bach, Beethoven  og Brahms — og skipar þannig sess meðal áhrifamestu tónskálda vestrænnar tónlistar. 

Einleikarar í Tvöfalda konsertinum eru hjónin Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari og  Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari. Margir muna eftir mögnuðum leik Mörtu  í Eldborgarsal Hörpu þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flutti Joker – Live to Film til  heiðurs Hildi Guðnadóttur í kjölfar Grammy-, Óskars- og Emmy-verðlauna hennar. Marta  er dóttir Guðmundar Óla Gunnarssonar sem stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í 23  ár og má því segja að hún hafi alist upp með hljómsveitinni.  

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger