© 2026 Tix Ticketing
Hallgrímskirkja
•
August 9
Ticket prices from
ISK 4,200




Orgelsumar í Hallgrímskirkju - Anne Kirstine Mathiesen
Anne Kirstine Mathiesen er aðalorganisti við Sct. Nicolai-kirkju í Køge í Danmörku. Hún stundaði orgelnám hjá prófessor Hans Fagius við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn og lauk þaðan meistaraprófi með láði árið 1993 og framhaldsnámi (Advanced Postgraduate Diploma) árið 1995.
Hún hefur sótt meistaranámskeið hjá Andrea Marcon, Harald Vogel, Hans-Ola Ericsson, Olivier Latry og Anders Bondemann. Á árunum 1997–1998 starfaði hún sem organisti við Dómkirkjuna í Kaupmannahöfn. Hún hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar og verðlaun í Danmörku og komið fram víða um Norðurlönd auk þess sem hún hefur leikið í Þýskalandi, Skotlandi, Hollandi, Eistlandi, Færeyjum og á Íslandi.
Anne Kirstine er virkur kammertónlistarmaður og kemur fram með ýmsum tónlistarhópum, meðal annars í barokktónlistarhópi með danska kornettóleikaranum Lene Langballe, í Ensemble Norðsól ásamt sópransöngkonunni Svöfu Þórhallsdóttur og sellóleikaranum Hönnu Englund, í orgeldúói með danska organistanum Vibeke Astner og í píanó- og orgeldúói með danska píanóleikaranum Jens Ramsing. Þá starfar hún einnig reglulega með dönskum atvinnukórum og tónlistarhópum.

