Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2026 - Pétur Nói Stefánsson

Hallgrímskirkja

July 25

Ticket prices from

ISK 3,200

Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2026

Laugardagur 25. júlí kl. 12

Pétur Nói Stefánsson orgel (Eyrarbakkakirkja)

Ingunn Erla Sigurðardóttir trompet

Aðgangseyrir 3.200 kr.

 

Pétur Nói Stefánsson (f. 2003) hóf Suzuki-píanónám 6 ára gamall við Tónlistarskóla Árnesinga. Eftir stúdentspróf frá Menntaskóla í tónlist hóf hann nám við Listaháskóla Íslands og Tónskóla Þjóðkirkjunnar en þaðan lauk hann kantorsprófi vorið 2025 og einleikaraprófi ári síðar. Síðastliðin fjögur ár hefur orgelkennari Péturs Nóa verið Björn Steinar Sólbergsson. Pétur Nói hefur starfað sem organisti frá tvítugsaldri og einnig kennt við Tónlistarskóla Árnesinga. Hann hefur haldið orgeltónleika í fjölmörgum kirkjum landsins.



Ingunn Erla Sigurðardóttir (f. 2001) hóf nám við Tónlistarskóla Akureyrar en þaðan lauk hún framhaldsprófi í klassískum trompetleik vorið 2021. Ingunn útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands með B.MusEd. í klassískri söng- og hljóðfærakennslu 2025. Kennari hennar var Eiríkur Örn Pálsson. Hún hefur leikið með Lúðrasveit Verkalýðsins, Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands og einnig kennt nemendum í Skólahljómsveit Austurbæjar. Ingunn Erla stundar nú framhaldsnám í Danmörku.

 

HALLGRÍMSKIRKJA  – ÞINN STAÐUR Í REYKJAVÍK

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger