© 2026 Tix Ticketing
Hallgrímskirkja
•
August 1
Ticket prices from
ISK 3,200




Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2026 — Eyþór Franzson Wechner, organisti við Blönduóskirkju
Eyþór Franzson Wechner fæddist á Akranesi og hóf orgelnám 14 ára gamall, fyrst undir leiðsögn Úlriks Ólasonar og síðar hjá Birni Steinari Sólbergssyni við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands.
Eftir tveggja ára nám við Listaháskóla Íslands hélt hann til náms í Þýskalandi. Við Hochschule für Musik und Theater „Felix Mendelssohn Bartholdy“ í Leipzig lauk hann Bachelor of Arts-gráðu í orgelleik árið 2012 og Master of Arts-gráðu árið 2014. Helsti kennari hans þar var Stefan Engels prófessor.
Eyþór starfar nú sem organisti við Blönduóskirkju og nærsveitir og kennir við Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga og Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hann hefur haldið einleikstónleika á Íslandi, í Þýskalandi, Litáen og Ástralíu.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR

