© 2026 Tix Ticketing

Salurinn
•
March 10
Ticket prices from
ISK 3,900




Þessi dreymandi og djúpa efnisskrá er samansett af tónlist sem er öll skrifuð til heiðurs þeirra listamanna sem veittu tónskáldunum innblástur. Verkin hafa líka öll vissa tengingu við Frakkland, en Grisey, Boulez og Ravel voru franskir, Stravinsky bjó lengi í Frakklandi og hlaut síðar franskan ríkisborgararétt. Pólverjinn Lutoslawski komst ekki til náms til Parísar eins og hann dreymdi um vegna seinni heimsstyrjaldarinnar, en var fyrir miklum áhrifum af frönskum samtímamönnum sínum og starfaði með fyrrnefndum Boulez. Allir eiga þeir líka sameiginlegt að þeir leggja sérstaka áherslu á liti og áferð í tónlist sinni sem leiða skynfæri hlustandans í ferðalag.
Elja samanstendur af ungu íslensku klassísku tónlistarfólki. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa stundað nám saman á Íslandi áður en haldið var erlendis, og starfa þau nú flest sem einleikarar eða hljómsveitarspilarar á Íslandi og víða um heim. Frá stofnun kammersveitarinnar árið 2017 hefur hún skipað sér í sess meðal fremstu kammersveita landsins og hefur vakið athygli fyrir líflegan og ferskan flutning. Elja hefur á þessum árum komið reglulega fram og stærstu tónleikarnir yfirleitt bæði á sumrin og um áramót ásamt smærri kammertónleikum á haust- og vorönn. Tónleikahúsnæðin hafa verið fjölbreytt og þar má nefna Hörpu, Gamla Bíó, Hof, Gömlu kartöflugeymslurnar, Iðnó, Tjarnarbíó og Miklagarð í Varmahlíð. Elja hefur hlotið mikið lof fyrir flutning sinn og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2019 sem flytjandi ársins (hópar) í flokknum Sígild og samtímatónlist. Einnig var Elja útnefnd listhópur Reykjavíkur árið 2026.

