© 2026 Tix Ticketing

Salurinn
•
November 25
Ticket prices from
ISK 3,900




Salón voru sérstakar menningarsamkomur sem blómstruðu í frönsku samfélagi allt frá 17. öld og fram á þá 19. og fóru fram í betri stofum og sölum efri stéttar heimila. Þar komu saman listafólk og hugsuðir til að skiptast á hugmyndum, m.a. um samtímalist. Fjarri akademíum og formfestu opinberra vettvanga varð til suðupunktur nýrra strauma og ekki síst í tónlist.
Þrátt fyrir að konur nytu ekki formlegra valda á þessum tímum, höfðu þær óbein en þó raunveruleg menningarleg áhrif í salónunum. Þær sem gengdu lykilhlutverki sem gestgjafar gátu mótað umræðu, stutt listamenn og haft bein áhrif á þróun lista og hugmynda. Konur stigu þar einnig á stokk sem tónlistarflytjendur. Í þessum nándarrýmum ómaði franska mélodie-hefðin, einkum tónlist eftir Debussy, Duparc og Fauré, en jafnframt tóndæmi úr frönsku óperu tónbókmenntunum.
Á þessum tónleikum verður horfið aftur til fyrri tíðar og leitast við að endurskapa andrúmsloft salónanna með því að umbreyta sviðinu í franska betri stofu. Í anda salonnière-kvenna fyrri alda leiða tónlistarkonurnar þrjár áheyrendur inn í franskan hljóðheim, þar sem ljóðræn angurværð og dramatísk ástríða óperunnar mætast.

