Perlur klarinettubókmenntanna

Hannesarholt

September 12

Ticket prices from

ISK 3,900

Birkir Örn Hafsteinsson, klarinettuleikari og Jane Ade Sutarjo, píanisti, leiða saman hesta sína á þessum dúó tónleikum og flytja nokkrar af helstu perlum klarinettubókmenntanna, á efnisskrá eru verk eftir J. Brahms, C. M. von Weber, R. Schumann og Jón Nordal.

Birkir Örn Hafsteinsson, fæddur í Reykjavík árið 1997, hóf klarínettunám ungur að aldri hjá Skólahljómsveit Austurbæjar hjá Kristjáni Þ. Stephensen og Grími Helgasyni. Þaðan lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hann lauk framhalds- og burtfararprófi undir handleiðslu Freyju Gunnlaugsdóttur. Árið 2022 brautskráðist Birkir með bakkalárgráðu í klarínettuleik frá Hochschule für Musik Dresden, þar sem Henry Philipp var aðalkennari hans. Hann hefur einnig sótt tíma í bassaklarínettuleik hjá Christian Dolfuß.

Birkir hefur m.a. spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Orkester Norden, hljómsveit Óperudaga og kammersveitinni Elju. Hann er einn sigurvegara keppninnar Ungir einleikarar 2022 og flutti einleik með hljómsveitinni það ár. Hann hefur tekið þátt í meistaranámskeiðum hjá Barnaby Robson, Luigi Magistrelli, Jörg Widmann og Manuel Siles. Birkir hefur verið virkur þátttakandi í flutningi á samtímatónlist í Dresden en þar hefur hann frumflutt fjölda verka eftir samnemendur sína og tekið þátt í samspilsverkefnum undir leiðsögn tónskáldanna Helmut Lachenmann og Söru Nemtsov. Birkir starfar sem klarínettukennari hjá Menntaskóla í Tónlist og Skólahljómsveit Austurbæjar, þar sem hann er einnig skólahljómsveitarstjórnandi.



Jane Ade Sutarjo fæddist í Jakarta í Indónesíu. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri, fyrst á píanó og síðar á fiðlu. Píanónámið hóf hún hjá móður sinni, Marthalenu Sugito en hlaut siðan kennslu hjá Vanda Tiodang og Fabiola Chianiago. Nám á fiðlu stundaði Jane hjá Grace Sudargo og Sharon Eng þar til hún flutti til Íslands haustið

2008. Hún hóf nám við Listaháskóla Íslands þar sem hún lærði á fiðlu hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttur og seinna hjá Peter Máté, en Jane er sú fyrsta sem hefði lokið einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá Listaháskóla íslands.

Síðan Jane kom til Íslands hefur hún verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi. Hún hefur komið fram sem einleikari, meðleikari og í ýmsum kammertónlistarhópum. Hún spilaði einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2011 og hélt debut tónleikana sína í Salnum í febrúar 2014. Hún hefur einnig tekið þátt í píanókeppnum bæði hér á Íslandi og erlendis. Hún hlaut 1. sæti í fimmtu EPTA píanókeppninni á Íslandi árið 2012.

Eftir að hún útskrifaðist frá LHÍ árið 2012 hefur hún kennt á píanó auk þess að starfa sem meðleikari. Sumarið 2017 lauk hún meistaragráðu frá Tónlistarháskóla Noregs (Norges Musikkhøgskole), þar sem hún lærði hjá Jens Harald Bratlie og Kathryn Stott. Einnig lærði hún á fortepíanó hjá Liv Glaser.

Nú starfar hún sem meðleikari við Menntaskóla í Tónlist og Listaháskóla Íslands


Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger