Sveitavegir

July 25

Sale starts

June 1, 2026, 8:00 AM

(in 5 days)

  Sveitavegir  

  

Sveitavegir er tónlistarhátíð sem fer fram á Hofsósi 25. júlí 2026. Tónlistarfólk héðan (úr Skagafirði) og þaðan (að sunnan) kemur saman og flytur klassíska sveitatónlist, með fyrirmyndir sóttar vestur um haf. Með henni geta líka flætt þjóðlög og íslensk sveitatónlist.

Hátíðin fer fram í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi, sem hentar vel til tónleikahalds. Hofsós og Skagafjörður eru líka í sérflokki fyrir svona viðburð: hér hefur tónlist, söngur og frásagnarhefð verið samofin sveitalífinu í langan tíma. Í raun má segja að allir sveitavegir liggi til Hofsóss.

Dagskrá:

Upphitun (opin öllum): 15:00–16:30

Megindagskrá: 20.00 og fram til miðnættis

Meðal hljómsveita sem koma fram:

Dulúð

Lára og húsið í Sléttuhlíð

Lævís hestur

Sveitavegir Helga Sæmundar og félaga

Sverrisson Hotel

Miðar:

Miðar fást við innganginn og á Tix.is (hefst þar 1. júní).

Verð: 3.500 kr.

Athugið að sætaframboð er takmarkað við aðgengi að Höfðaborg.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger