OLGA VOCAL ENSEMBLE – FRAGMENTS - SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG

Hafnarborg

June 23

Ticket prices from

ISK 0

OLGA VOCAL ENSEMBLE – FRAGMENTS - SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG

Olga Vocal Ensemble er alþjóðlegur sönghópur skipaður söngvurum frá Hollandi, Íslandi, Englandi og Rússlandi/Bandaríkjunum. Hópurinn var stofnaður árið 2012 í Hollandi. Olga byrjaði smátt, en hélt fljótlega sína fyrstu tónleika í sendiráði Íslands í Brussel árið 2013 og það sama ár kom hópurinn í fyrsta sinn fram í Hollandi og fór í sína fyrstu tónleikaferð um Ísland. Síðan þá hefur Olga gefið út sex plötur, farið í tónleikaferðir um Evrópu og Bandaríkin og komið fram í Concertgebouw í Amsterdam, Hörpu í Reykjavík og Kennedy Center í Washington, D.C., auk þess nýlega í óbyggðum Ástralíu í Alice Springs.

FRAGMENTS – echoes of a father

Í FRAGMENTS – echoes of a father fær Olga til liðs við sig Ástu Sigríði Arnardóttur, sem les texta eftir skáldið Maureen Ghazal. Textinn var upphaflega skrifaður á hollensku en á tónleikunum mun Ásta flytja hann í íslenskri þýðingu. Sagan leiðir áheyrendur í ferðalag um líf manns, frá æskudraumum til elliáranna, mótað af stríði, útlegð og þrá eftir heimili.

Olga sameinar fjölradda söng og talað mál og tengir minningar við samtímann. Úkraínsk, palestínsk, rússnesk, hebresk, íslensk og havaísk lög fléttast saman við klassíska tónlist, gospel og popp. Hvert lag ber með sér brot úr stærri sögu. Ljóð Maureen Ghazal bæta við söguna samkenndarfullu lagi, sögu um aðflutning, rótleysi og leit að tengingu í sundruðum heimi.

Olga Vocal Ensemble is based in the Netherlands and Iceland, with singers who are Dutch, Icelandic, English, and Russian-American. Olga formed in 2012. It started small, but they soon had their first show (at the Icelandic embassy in Brussels), then a debut in the Netherlands, and then a first tour of Iceland in summer of 2013. Since then, Olga has recorded six albums, toured Europe and the United States, and performed in the Concertgebouw in Amsterdam, Harpa in Reykjavík, and the Kennedy Center in Washington, D.C., as well as recently in the Outback in Alice Springs, Australia.

FRAGMENTS - echoes of a father

In FRAGMENTS - echoes of a father, Olga is joined by performer Ásta Sigríður Arnardóttir, reading texts by poet Maureen Ghazal (originally in Dutch, translated to Icelandic for this performance), to take a journey through a man's life — from youthful dreams to old age, marked by war, exile, and the longing for home.

Olga combines polyphonic singing with the spoken word, connecting memories with the present. Ukrainian, Palestinian, Russian, Hebrew, Icelandic, and Hawaiian songs are interspersed with classical works, gospel, and pop. Each song carries a fragment of a larger story. Maureen Ghazal's poetry brings an empathetic layer to the story - a story of displacement, uprooting, and the search for connection in a world torn apart.

Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á aðeins 15.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 13.6.-28.6.2026. Takmarkað upplag er í boði.


SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG FAGNAR 10 ÁRA AFMÆLI
13.6-28.6.2026

TÓNLEIKAR:

Í KVÖLDROÐA
Lau. 13.6. kl. 17:00
Sally Matthews sópran og Simon Lepper píanóleikari. Ljóðatónleikar.

SUOR ANGELICA
Lau. 20.6. kl. 17:00
Sönghópurinn Gjallandi og píanóleikarinn Ólína Ákadóttir flytja óperuna Suor Angelica eftir Giacomo Puccini.

VEGURINN ENDALAUSI
Sun. 21.6. kl. 17:00
Stuart Skelton tenór og Liam Kaplan píanóleikari. Ljóðatónleikar.

FRAGMENTS
Þri. 23.6. kl. 20:00
Olga Vocal Ensemble. Fragments útgáfutónleikar.

MASTER CLASS TÓNLEIKAR
Fim. 25.6. kl. 20:00
Nemendur Kristins Sigmundssonar á master class námskeiði og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari flytja sönglög og óperuaríur.

FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
Fös. 26.6. kl. 17:00
Solveig Óskarsdóttir söngkona og Sævar Helgi Jóhannsson píanóleikari. Börn úr skapandi tónlistarsmiðju undir stjórn Sævars koma einnig fram.

HINN EILÍFI SÖNGUR
Lau. 27.6. kl. 17:00
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Halldóra Ósk Helgadóttir sópran, Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanó, Sólveig Steinþórsdóttir fiðla, Bjargey Birgisdóttir fiðla, Fidel Atli Quintero Gasparsson víóla, Júlía Mogensen selló og Francisco Javier Jáuregui gítar. Ljóðatónleikar.

ÓPERUGALA
Sun. 28.6. kl. 17:00
Harpa Ósk Björnsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Elmar Gilbertsson tenór, Andri Björn Róbertsson bass-baritón og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari flytja aríur og samsöngsatriði úr óperum.

Sönghátíð í Hafnarborg 2026

Hin árlega Sönghátíð í Hafnarborg fagnar tíu ára afmæli dagana 13. – 28. júní 2026.

Hátíðin býður upp á átta opinbera tónleika í aðalsal Hafnarborgar með vönduðum tónlistarmönnum af ólíkum kynslóðum. Ljóðasöngur, óperutónlist og samsöngur verða í hávegum höfð.

Á Sönghátíð í Hafnarborg gefst einstakt tækifæri til að sjá framúrskarandi söngvara í návígi, þar á meðal Metropolitan hetjutenórinn Stuart Skelton með Liam Kaplan við slaghörpuna og sópranstjörnuna Sally Matthews ásamt meðleikaranum fræga Simon Lepper.

Yngri kynslóðin lætur skýrt í sér í heyra í flutningi Gjallanda á óperunni Suor Angelica eftir Puccini.

Hin vinsæli raddkvartett Olga Vocal Ensemble flytur lög af nýjustu plötunni sinni, Fragments.

Ljóðasöngur með strengjakvartett, píanói og gítar blómstrar á tónleikunum Hinn eilífi söngur, þar sem söngkonurnar Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Halldóra Ósk Helgadóttir koma fram. Halldóra Ósk tekur þátt sem handhafi verðlaunanna Rödd ársins í söngkeppninni Vox Domini.

Óperusöngvararnir Harpa Ósk Björnsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Elmar Gilbertsson tenór, Andri Björn Róbertsson bass-baritón og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari flytja aríur og samsöngsatriði úr ástsælum óperum á hinu vinsæla árlega Óperugala.

Á master class tónleikum flytja söngvarar, söngnemendur og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari uppskeru fjögurra daga námskeiðs sem einn af reynslumestu óperusöngvurum Íslands, Kristinn Sigmundsson, kennir á.

Einnig er boðið upp á fjölskyldutónleika þar sem Solveig Óskarsdóttir og Sævar Helgi Jóhannsson flytja skemmtilega dagskrá með aðstoð barna úr vikulangri skapandi tónlistarsmiðju hátíðarinnar, en Sævar hlaut nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins.

Sönghátíð í Hafnarborg hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Hún var stofnuð árið 2017 og fer því tíunda árlega hátíðin fram í ár. Auk tónleika býður hún upp á master class námskeið Kristins Sigmundssonar fyrir söngnemendur og söngvara, skapandi tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6-12 ára, tónlistarsmiðju fyrir 3-5 ára með foreldrum og krílasöng fyrir 6-18 mánaða með foreldrum.

Markmið hátíðarinnar er að koma list raddarinnar á framfæri með tónleikum og námskeiðum. Jafnframt er horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar viðtöl við söngvara og valdar myndbandsupptökur af tónleikum.

Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Tónlistarsjóður, Hafnarfjörður, Spænska sendiráðið, AECID, Félag íslenskra hljómlistarmanna og Barnamenningarjóður Íslands styðja hátíðina. Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn.

Góða skemmtun!

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui,
stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar í Hafnarborg.

Dagskrá hátíðarinnar má skoða á vefsíðunni www.songhatid.is Miðasalan fer fram á Tix.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger