Sóli Hólm | Af fingrum fram

Salurinn

May 6

Ticket prices from

ISK 7,900

Skemmtikrafturinn vinsæli Sóli Hólm verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 6. maí, 2027. 

Sólmundur var mikið félagsmálatröll í MS og lék þar og söng öllum stundum. Snemma urðu listamennirnir Pálmi Gunnarsson og Shaggy þess heiðurs aðnjótandi að hann fór að herma eftir þeim. 

Í dag er Sóli Hólm einn vinsælasti skemmtikraftur landsins auk þess sem hann hefur skrifað gamanefni fyrir sjónvarp. Eftirhermur hans eru engum líkar - nema fyrirmyndunum og kappinn er hörku söngvari í ofanálag.  Gestir mega eiga von á góðu. 

// 

Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem   einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund.    

Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna.  

Gestir Af fingrum fram tónleikaárið 2026-2027 eru eftirfarandi:  

/ 2026 /

  • 17.      september 2026: Halli og Gói

  • 1.      október 2026: Una Torfa

  • 15.      október 2026: Jón Jónsson

  • 5.      nóvember 2026: Jónas Sig

  • 26.      nóvember 2026: Ragga Gísla

/ 2027 /

  • 21.      janúar 2027: Mugison

  • 11.      febrúar 2027: Bríet

  • 11.      mars 2027: Daníel Ágúst

  • 8.      apríl 2027: Ólöf Arnalds

  • 6.      maí 2027: Sóli Hólm

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger