Daníel Ágúst | Af fingrum fram

Salurinn

March 11

Ticket prices from

ISK 7,900

Tónlistarmaðurinn fjölhæfi Daníel Ágúst verður gestur samstarfsfélaga síns til margra ára, Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 11. mars, 2027.

Daníel Ágúst sló fyrst í gegn með hljómsveitinni Nýdönsk þegar lagið Hólmfríður Júlíusdóttir kom út.  Hljómsveitin starfar enn og þeir eru ófáir smellirnir sem Daníel hefur samið og/eða sungið í þeim félagsskap. Má þar nefna lög eins og Horfðu til himins og Fullkomið farartæki.  Hann er einnig meðlimur í Gus Gus sem er ekki síður vinsæl og á einnig góðu fylgi að fagna á erlendri grundu.  Daníel hefur einnig sent frá sér sólóplötur auk þess að leika á sviði og í bíómyndum.

Það er von á góðu þegar söngvari Gus Gus og Nýdönsk heilsar upp á Jón sinn í Salnum! 

//

Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem   einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund.    

Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna.

Gestir Af fingrum fram tónleikaárið 2026-2027 eru eftirfarandi:

/ 2026 /

  • 17.      september 2026: Halli og Gói

  • 1.      október 2026: Una Torfa

  • 15.      október 2026: Jón Jónsson

  • 5.      nóvember 2026: Jónas Sig

  • 26.      nóvember 2026: Ragga Gísla

/ 2027 /

  • 21.      janúar 2027: Mugison

  • 11.      febrúar 2027: Bríet

  • 11.      mars 2027: Daníel Ágúst

  • 8.      apríl 2027: Ólöf Arnalds

  • 6.      maí 2027: Sóli Hólm

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger