Una Torfa | Af fingrum fram

Salurinn

October 1

Ticket prices from

ISK 7,900

Tónlistarkonan vinsæla Una Torfa verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 1. október, 2026!   

Fyrir nokkrum árum sló Una rækilega í gegn með frábærum og grípandi popplögum sínum og íslenska þjóðin var meira en til í þessa músík.  Það er óhætt að líkja ferlinum hingað til sem sigurför.  Hún skrifaði söngleikinn Storm ásamt Unni Ösp Stefánsdóttur auk þess að semja tónlistina fyrir verkið. Auk tónlistar Unu er aldrei að vita nema hægt verði að véla hana í eitthvað fleira skemmtilegt. Hvur veit? 

//

  Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem   einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund.   

Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna.

 

Gestir Af fingrum fram tónleikaárið 2026-2027 eru eftirfarandi:

 

/ 2026 /

  • 17.      september 2026: Halli og Gói

  • 1.      október 2026: Una Torfa

  • 15.      október 2026: Jón Jónsson

  • 5.      nóvember 2026: Jónas Sig

  • 26.      nóvember 2026: Ragga Gísla

/ 2027 /

  • 21.      janúar 2027: Mugison

  • 11.      febrúar 2027: Bríet

  • 11.      mars 2027: Daníel Ágúst

  • 8.      apríl 2027: Ólöf Arnalds

  • 6.      maí 2027: Sóli Hólm

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger