© 2026 Tix Ticketing

Salurinn
•
September 17
Ticket prices from
ISK 7,900




Tveir vinsælustu leikarar þjóðarinnar slá í púkk og heimsækja Jón í Salinn!
Á dagskránni verður að finna ódauðleg lög úr leikhúsinum í bland við ólíklegustu tónlist. Enginn yrði hissa þó eitthvað yrði spunnið á staðnum. Hallgrímur Ólafsson & Guðjón Davíð Karlsson hafa leikið saman í vinsælum leiksýningum eins og Óvitum, Gauragangi og Ormstungu – svo eitthvað sé nefnt. Við þekkjum þá einnig úr sjónvarpsþáttum og bíómyndum og hugsanlega kíkja í heimsókn þeir Magnús M. Magnússon og Kalli Selló.
//
Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund.
Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna.
Gestir Af fingrum fram tónleikaárið 2026-2027 eru eftirfarandi:
/ 2026 /
17. september 2026: Halli og Gói
1. október 2026: Una Torfa
15. október 2026: Jón Jónsson
5. nóvember 2026: Jónas Sig
26. nóvember 2026: Ragga Gísla
/ 2027 /
21. janúar 2027: Mugison
11. febrúar 2027: Bríet
11. mars 2027: Daníel Ágúst
8. apríl 2027: Ólöf Arnalds
6. maí 2027: Sóli Hólm

